Select Page

Hvað er geðrænn vandi?

Hafrún
Hæ! Ég heiti Hafrún

Ágúst 
Og ég heiti Ágúst. Í þessu myndbandi ætlum við að fjalla um það hvernig það er að eiga foreldri með geðrænan vanda.

Hafrún
Eitt af hverjum fimm börnum í heiminum eiga mömmu eða pabba með geðrænan vanda.
Það er því mjög líklegt að þú býrð við þær aðstæður, eða þekkir einhvern sem gerir það.

Ágúst
Fólk með geðrænan vanda á það til að upplifa sterkar tilfinningar eins og sorg, áhyggjur eða finnur fyrir hugsunum sem trufla þau í daglegu lífi. Það fer kannski að haga sér öðruvísi, gera skrýtna hluti eða vill ekki hitta fólk.

Lesa meira um geðrænan vanda

Hafrún

Ef þú átt foreldri sem er með geðrænan vanda hefur þú kannski tekið eftir því að foreldri þitt hafi breyst eða að það segir hluti sem gerir þig ringlaðan og veldur þér áhyggjum. Þú ert þá örugglega að pæla í því hvað sé í gangi.

Ágúst 

Þá er mikilvægt að muna að það er ekki að gera þetta viljandi. Geðrænn vandi hefur nefnilega áhrif á heilann í fólki og breytir því hvernig það hugsar, líður og hegðar sér.

Hafrún

Það er ekki vitað af hverju fólk fær geðrænan vanda þó það hafi mikið verið rannsakað.

Hafrún

Alveg eins og líkaminn veikist þá getur heilinn líka veikst. En það þýðir ekki að maður geti fengið geðrænan vanda eins og maður fær kvef. Nákvæmlega hvers vegna heilinn veikist er enn dálítið sem fólk er að reyna að komast að.

Ágúst

Sumir halda að geðrænn vandi stafi af blöndu þriggja mismunandi hluta:

Í fyrsta lagi: Efnum í heilanum sem fara smá úr jafnvægi.

Hafrún

Í öðru lagi: Löngum tímabilum með miklum tilfinningum eins og áhyggjum og stressi sem aukast og aukast og verða loks of stórar til að fólk geti stjórnað þeim.

Ágúst

Í þriðja lagi: Hlutir sem við stjórnum ekki geta valdið miklum áhyggjum, eins og til dæmis að missa vinnuna, að það sé of mikið að gera eða að einhver í fjölskyldunni eða vinur deyr.

Ágúst

Hjá sumum verður einn hlutur alvarlegri en hinir, eða þeir blandast saman og þá fer þeim að líða illa.

Hafrún

Það sem þarf að muna er að það eru ekki allir eins. Fólk getur haft áhyggjur og fundið fyrir sterkum tilfinningum, en það þýðir ekki endilega að það sé geðrænn vandi.

Hafrún  

Sumir halda líka að fólk fái geðrænan vanda af því að það verður fyrir áfalli.

Ágúst  

Áfall er þegar eitthvað kemur allt í einu fyrir sem er erfitt að ráða við, eins og að það kvikni í húsinu þínu, gæludýrið þitt eða einhver í fjölskyldunni deyr eða að foreldrar þínir skilja.

Hafrún 

Það getur líka verið slys eða ofbeldi sem gerist allt í einu eða hægt og rólega á löngum tíma.

Ágúst

Fyrir suma getur áfall haft svo ótrúlega mikil áhrif á geðheilsu fólks að það losnar aldrei við það úr höfðinu. Það er meira að segja til geðrænn vandi sem er tengdur við áföll og heitir áfallastreituröskun eða PTSD.

Hafrún 

Svo er annað, það að eiga foreldri með geðrænan vanda þýðir ekki að þú munir fá hann líka.

Ágúst

Þú tekur kannski eftir því að þú ert með tilfinningar eða hugsanir sem erfitt er að skilja og höndla. Þetta eru eðlilegar tilfinningar, og þær eru hluti af þér.

Hafrún 

Allir hafa tilfinningar. En manneskja með geðrænan vanda er líkleg til að finna fyrir miklum og ýktum tilfinningum eins og sorg eða kvíða og þær geta varað mánuðum, jafnvel árum saman fyrir suma.

Ágúst  

Ef að foreldri þitt er með geðrænan vanda hefur þú kannski einhvern tímann haldið að það sé þér að kenna, eða að þú sért ekki að hjálpa eða að gera hann verri.

Hafrún

Það er ekki rétt. Það er aldrei þér að kenna að foreldri þitt sé með geðrænan vanda.  

Ágúst

Reyndu að finna einhvern sem þú getur talað við um áhyggjurnar þínar. Það gæti verið einhver fullorðinn sem þú treystir eins foreldri vina þinna, amma eða afi, frændi eða frænka, þjálfari eða kennari.

Hafrún

Þú getur líka alltaf hringt í Hjálparsíma Rauða krossins, sautján sautján. Þau eru með gott og klárt fólk sem þú getur talað við.

Ágúst

Fólk með geðrænan vanda getur ákveðið að gera hluti sem hjálpa því að líða betur.

Hafrún

Það sem skiptir mestu máli er að þú hugsir vel um sjálfan(n) þig.

Hvað eru geðhvörf?

Manneskja með geðhvörf er oft annað hvort mjög niðurdregin og líður illa eða er full af orku, ofurspennt og á erfitt með að vera róleg. Skapið hjá manneskjunni getur sveiflast frá því að vera rosalega gott í að vera mjög slæmt.

Manneskjan getur líka skipt um skap allt í einu, hún er kannski glöð, orkumikil og talar mjög hratt og svo allt í einu er hún orðin rosalega leið og niðurdregin og vill fá að vera ein.

Fólk með geðhvörf getur ekki stjórnað því hvenær skapið breytist, hversu ákaft og æst það verður eða hversu oft breytingarnar verða. Þessar sveiflur frá einu skapi til annars geta varað í margar vikur eða mánuði – og hjá sumum í mörg ár.

Lesa meira um geðhvörf

Hvernig hagar manneskja sér sem er með geðhvörf?
Ef foreldri þitt er með geðhvörf þá er líklegt að þú upplifir tímabil þar sem það er ruglingslegt eða skrítið og það er eðlilegt ef þér finnist þessi tímabil erfið.

Það er mjög misjafnt hvernig fólk með geðhvörf hagar sér, það fer eftir til dæmis eftir því hvort það er í geðhæð eða geðlægð. Hér eru nokkrir hlutir sem er algengt að sjá hjá manneskju með geðhvörf.
Hún getur orðið rosalega leið og niðurdregin í einhvern tíma, hefur enga orku, finnst ekkert vera skemmtilegt lengur og er hætt að njóta þess að gera hluti sem hún gerði áður.
Það koma líka tímabil þar sem manneskjan getur verið rosalega hress, fyndin og finnst gaman að vera með öðru fólki og það er mjög gaman að vera með henni. Þegar henni líður svona er hún oftast með mikla orku sem endist miklu lengur en hjá öðrum.
Stundum á fólk með geðhvörf erfitt með að fara fram úr rúminu og sefur allan daginn og vakir á nóttunni.
Sumir með geðhvörf tala svakalega hratt eða fá margar skrítnar hugmyndir í röð.
Aðrir kaupa hluti sem þeir þurfa ekki og eiga jafnvel ekki peninga til að kaupa þá.
Manneskja með geðhvörf á stundum erfitt með að byrja á einhverju eða ljúka við það sem hún byrjaði á.
Stundum gerir hún mjög skrítna hluti sem þér gæti þótt vandræðalegir og skammast þín fyrir. Hún gæti til dæmis haldið að hún geti gert hluti sem hún hefur aldrei gert áður og það getur verið svolítið vandræðalegt.

Getur verið að ég sé með geðhvörf?
Við upplifum öll skapsveiflur. Stundum líður okkur vel og stundum líður okkur illa og allt þar á milli.
Það að vera glöð/glaður, ánægð/ur, róleg/ur og reið/ur er hluti af tilfinningum sem er eðlilegt að upplifa og gerir okkur að manneskjum. Stundum erum við leið af engri sérstakri ástæðu og stundum verðum við leið ef við fáum slæmar fréttir. En munurinn er sá að tilfinningar okkar eru ekki eins ákafar eða ýktar eins og hjá einstaklingi með geðhvörf.

Get ég fengið geðhvörf?
Geðhvörf eru ekki veikindi sem hægt er að smitast af, þótt þú eigir mömmu eða pabba með geðhvörf þýðir það ekki að þú fáir þau líka.

Er hægt að lækna geðhvörf?
Fólk með geðhvörf hegðar sér ekki svona viljandi og því miður er þetta ekki eitthvað sem það getur ákveðið að reyna að hrista af sér. Góðu fréttirnar eru þær að það er hægt að fá aðstoð. Fólk með geðrænan vanda getur verið á batavegi, liðið betur og notið þess að lifa lífinu með fjölskyldu og vinum. Til þess að líða betur getur verið nauðsynlegt fyrir manneskju með geðhvörf að tala við lækni eða sálfræðing og fá aðstoð með lyfjum.

Hvað get ég gert?
Ef foreldri þitt er með geðhvörf er mikilvægt að þú vitir að það er ekki þér að kenna að það sé veikt. Það er heldur ekki þitt hlutverk að sjá til þess að því líði betur. Það getur verið ruglingslegt, vandræðalegt og jafnvel svolítið ógnvekjandi og erfitt að eiga foreldri með geðhvörf. Þér líður kannski stundum eins og þú sért í rússíbana og vitir ekki hvað gerist næst. Það er mjög mikilvægt að þú hugsir vel um þig og gerir hluti sem þér finnst skemmtilegir. Ef þú hefur áhyggjur er gott að tala við einhvern. Það getur verið fjölskylduvinur, þjálfarinn þinn, starfsfólk í skólanum eða einhver fullorðinn sem þú treystir.

Ef þér finnst þetta ekki lýsa foreldri þínu eða þeim sem þú ert með í huga skoðaðu fleiri lýsingur á geðrænum vanda hér á vefsíðunni.

Hvað er geðrof?

Geðrof eru veikindi sem vara yfirleitt ekki í langan tíma. Fólk sem fer í geðrof áttar sig oft ekki á því hvað er raunverulega að gerast og hvað ekki. Það sér kannski hluti og heyrir raddir eða hljóð sem aðrir sjá ekki eða heyra. Það getur orðið mjög ákaft, talað hátt og mikið og fólk í geðrofi hegðar sér oft á furðulegan hátt.

Manneskja í geðrofi gæti til dæmis haldið að einhver væri að reyna að meiða það, aðrir halda að þeir séu heimsfrægir, svo eru jafnvel sumir í geðrofi sem halda að þeir séu önnur manneskja en þeir eru. Fólk í geðrofi getur verið með mismunandi geðrænan vanda og yfirleitt er það ekki í geðrofi í langan tíma. Ef manneskja fer oft í geðrofi getur verið að hún sé með annan sjúkdóm sem kallast geðklofi.

Lesa meira um geðrof

Það er mjög mismunandi hvernig fólk í geðrofi eða með geðklofa upplifa veikindi sín.
Sumir upplifa geðrof eftir mikið áfall eða streitu í lífi sínu.

Áfall
Það er þegar þú upplifir eitthvað slæmt sem hefur mikil áhrif á það hvernig þér líður eins og ef það kviknar í, verður slys eða ef þú verður fyrir ofbeldi eða einelti. Sumir sem lenda í mjög slæmu áfalli geta átt erfitt með að hætta að hugsa um það og áfallið fylgir þeim oft í gegnum lífið.

Ofskynjanir
Manneskja sem er í geðrofi getur séð, heyrt eða fundið lykt af einhverju sem er ekki til staðar.
Hún gæti heyrt raddir sem segja henni að gera eitthvað. Hún gæti líka heyrt raddir sem eru annað hvort jákvæðar eða neikvæðar. Raddirnar geta ýmist verið að tala um manneskjuna eða við manneskjuna.

Ranghugmyndir
Einstaklingur með ranghugmyndir gæti haldið að fólk í sjónvarpinu sé að tala beint við sig.
Hann gæti haldið að eitthvað sé að gerast sem er ekki raunverulegt.
Hann gæti haldið að hann sé einhver annar en hann er.
Hann gæti orðið hræddur við hluti, hljóð eða eitthvað sem er ekki að gerast í raun og veru.

Hvernig hagar manneskja sér sem er í geðrofi?
Það getur verið mjög ógnvekjandi að tala við manneskju sem þér þykir vænt ef hún er í geðrofi. Fólk sem upplifir geðrof getur virst vera stressað, átt erfitt með einbeitingu eða að hlusta á annað fólk í samtölum vegna þess að það er svo mikið að gerast í huga þess og hugsunum. Það getur oft verið mjög erfitt að átta sig á því hvort hún sé að segja frá raunverulegum hlutum eða ekki. Manneskja í geðrofi gæti til dæmis allt í einu sagt: „Við verðum að hlaupa því það er verið að elta okkur“. Þá getur verið mjög erfitt að vita hvort það sé að gerast í alvörunni. Það er mikilvægt að muna að manneskjan er ekki að gera þetta af því hún er vond eða til þess að plata þig og hún er ekki gera þetta viljandi. Það getur verið að hún heyri, finni eða sjái hluti sem aðrir gera ekki. Þess vegna trúir hún virkilega að þetta sé raunverulegt og það getur verið svolítið ógnvekjandi bæði fyrir hana og þá sem eru nærri.

Get ég líka farið í geðrof?
Það er mikilvægt fyrir þig að muna að þótt þú eigir foreldri sem upplifir geðrof eða er með geðklofa þá þýðir það ekki að þú munir veikjast líka. Það getur verið að þú sért hrædd/ur um það vegna þess að þú talir til dæmis oft við sjálfa/n þig í huganum eða dreymir dagdrauma. En það er mjög eðlilegt. Það að dreyma dagdrauma eða eiga samtöl í huganum er hluti af heilastarfsemi okkar – það getur verið aðferð til að skilja ákveðna hluti. Munurinn er sá að þegar þig dreymir dagdrauma eða þú átt samtöl við sjálfa/n þig þá veistu að það er ekki raunverulegt. Þú veist einnig að annað fólk getur hvorki séð hugsanirnar né heyrt í þeim. Þær eru einungis í huga þínum og hugsunum.

Er hægt að lækna geðrof?
Ef þú heldur að foreldri þitt upplifi geðrof eða sé með geðklofa þá er það aldrei þér að kenna. Það er heldur ekki þitt hlutverk að sjá til þess að því líði betur. Fólk með geðrænan vanda getur verið á batavegi og liðið betur og notið þess að lifa lífinu með fjölskyldu og vinum. Til þess að líða betur getur verið nauðsynlegt fyrir manneskjuna að tala við lækni eða sálfræðing og fá aðstoð með lyfjum.

Hvað get ég gert?
Ef þú átt foreldri eða býrð með einhverjum sem fer í geðrof eða er með geðklofa er mjög mikilvægt að þú hugsir vel um þig. Gerðu hluti sem þér þykja skemmtilegir. Ef þú hefur áhyggjur er gott að tala við einhvern. Það getur verið fjölskylduvinur, þjálfarinn þinn, starfsfólk í skólanum eða einhver fullorðinn sem þú treystir,

Ef þér finnst þetta ekki lýsa foreldri þínu eða þeim sem þú ert með í huga skoðaðu fleiri lýsingur á geðrænum vanda hér á vefsíðunni.

Hvað er persónuleikaröskun?

Manneskja með persónuleikaröskun finnur oft fyrir miklum tilfinningum og skapið hennar sveiflast oft frá því að vera mjög gott yfir í það að vera mjög slæmt, án þess að það sé augljós ástæða fyrir því. Hún á oft erfitt með að tengjast fólki og á líklega mjög erfitt með að vera í nánum samböndum. Það koma oft upp vandamál í samskiptum hennar við annað fólk.

Þegar einstaklingur með persónuleikaröskun verður allt í einu reiður eða leiður reynir hann stundum að meiða sig. Þetta hefur mikil áhrif á samskipti hans við aðra. Einstaklingurinn er oft hræddur um að vera yfirgefinn, að fólk fari frá honum og hann verði skilinn eftir einn. Það er algengt að honum líði eins og allir hlutir snúist um hann og hann gerir oft stórmál úr litlum hlutum.

Lesa meira um presónuleikaröskun

Ef þú þekkir einhvern með persónuleikaröskun getur verið að manneskjan tali oft um rifrildi sín við annað fólk eða um sambandsslit. Hún upplifir kannski að það sé öðrum að kenna að henni líði illa og að fólk komi illa fram við sig eða sé vont við sig. Ef þetta er annað hvort mamma þín eða pabbi getur verið erfitt fyrir þig að upplifa þessa hluti og hlusta á það sem foreldri þitt hefur að segja. Þér finnst þú kannski þurfa að vera sammála foreldri þínu og standa með því, en á sama tíma finnst þér kannski skrítið að foreldri þitt lendi í svona mörgum erfiðum og slæmum samskiptum.

Hvernig hagar manneskja sér með persónuleikaröskun?
Persónuleikaröskun er mjög flókin og það er alls ekki auðvelt að átta sig á því hver er með hana. Hún er ekki eins hjá öllum en hér eru fleiri hlutir sem þú gætir séð og upplifað hjá þeim sem eru með persónuleikaröskun.

Manneskja með persónuleikaröskun eignast oft nýja vini en vinasamböndin endast oft stutt.
Sumir sem eru með persónuleikaröskun vilja forða sér þegar hlutirnir verða erfiðir.
Aðrir hegða sér á hættulegan hátt eins og vera úti alla nóttina.
Einstaklingurinn getur meitt sig eða hótað því að meiða sig.
Það getur verið að hann komi með fólk sem þú þekkir ekki heim til ykkar.

Get ég fengið persónuleikaröskun?
Persónuleikaröskun er geðrænn vandi. Það eru ekki veikindi sem þú smitast af. Þótt þú eigir foreldri með persónuleikaröskun þýðir það ekki að þú fáir hana líka.

Er hægt að lækna persónuleikaröskun?
Stundum hjálpar að tala við einhvern og fá stuðning. Fólk með geðrænan vanda getur verið á batavegi og liðið betur og notið þess að lifa lífinu með fjölskyldu og vinum. Til þess að líða betur getur verið nauðsynlegt fyrir manneskju með persónuleikaröskun að tala við lækni eða sálfræðing og fá aðstoð með lyfjum.

Hvað get ég gert?
Ef foreldri þitt er með persónuleikaröskun þá er mikilvægt að þú vitir að það er ekki þér að kenna að það sé veikt. Það er heldur ekki þitt hlutverk að sjá til þess að því líði betur. Það er mjög mikilvægt að þú hugsir vel um þig og gerir hluti sem finnst skemmtilegir. Ef þú hefur áhyggjur er gott að tala við einhvern. Það getur verið fjölskylduvinur, þjálfarinn þinn, starfsfólk í skólanum eða einhver fullorðinn sem þú treystir.

Ef þér finnst þetta ekki lýsa foreldri þínu eða þeim sem þú ert með í huga skoðaðu fleiri lýsingar á geðrænum vanda hér á vefsíðunni.

Hvað er þunglyndi?

Fólk með þunglyndi upplifir veikindin oftast á mjög ólíkan hátt og sumir verða veikari en aðrir. Manneskja sem er með þunglyndi er oft sorgmædd og reið og þykir jafnvel allt vera ómögulegt, þessar tilfinningar geta verið svo miklar að þær stjórna lífi hennar. Það er líka algengt að manneskjan finni fyrir streitu og pirringi og fari jafnvel að gráta án þess að það sé sérstök ástæða fyrir því.

Sumir eiga erfitt með að losna við tilfinningar eins og reiði eða slæmar hugsanir. Það geta verið hugsanir eins og að finnast maður ekki nógu góð manneskja. Þunglyndi getur varað í margar vikur, mánuði og hjá sumum eru þetta tilfinningar og hugsanir sem fólk hefur í mörg ár.

Fólk með þunglyndi hegðar sér ekki svona viljandi og getur ekki að því gert þó því líði svona.

Lesa meira um þunglyndi

Hvernig hagar manneskja sér sem er með þunglyndi?
Ef þú býrð með einhverjum sem er með þunglyndi er líklegt að þú sjáir manneskjuna oft dapra, leiða, reiða eða pirraða. Ef það er mamma þín eða pabbi er eðlilegt að þér finnist erfitt að sjá og upplifa foreldri þitt svona. Þunglyndi er ekki eins hjá öllum, hér eru fleiri hlutir sem þú gætir tekið eftir hjá einstaklingi með þunglyndi.

Sumir hætta að hafa gaman og njóta þess ekki lengur að gera hluti sem þeir höfðu áður gaman af.
Sumum líður mjög illa, sama hvort það er eitt eða með fólki sem það þekkir eins og vinum og fjölskyldu.
Sumir segja mjög slæma hluti um sig og lífið, eins og: „Ég skipti engu máli“ eða „Lífið er ömurlegt!“
Sumir liggja í rúminu og sofa allan daginn og eiga erfitt með að sofa á nóttunni.
Sumir eiga erfitt með að einbeita sér þegar það er verið að tala við þá.
Sumir eru oft þreyttir, orkulitlir og þeim finnst erfitt að klára það sem þeir eru byrjaðir á.

Getur verið að ég sé með þunglyndi?
Þú veltir því kannski fyrir þér hvort þú sért með þunglyndi vegna þess að þú sért stundum leið/ur og niðurdregin/n. En það þarf alls ekki að vera. Það er eðlilegt að vera stundum niðurdregin/n og leið/ur. Að finna fyrir tilfinningum eins og depurð, gleði, reiði, pirring og áhyggjum gerir okkur að manneskjum. Þegar við finnum fyrir þessum tilfinningum fara þær oftast eftir smá tíma. Þú getur til dæmis upplifað gleði og depurð sama dag. Fyrir þá sem ekki eru með þunglyndi getur verið nóg að fara í göngutúr, horfa á fyndin myndbönd eða hringja í vin til þess að láta sér líða betur.

Get ég líka fengið þunglyndi?
Það er ekki hægt að smitast af þunglyndi og þótt þú eigir foreldri með þunglyndi þýðir það ekki að þú munir fá þunglyndi.
Er hægt að lækna þunglyndi?
Fólk með þunglyndi getur verið á batavegi og liðið betur og notið þess að lifa lífinu með fjölskyldu og vinum. Til þess að líða betur getur verið nauðsynlegt fyrir manneskju með þunglyndi að tala við lækni eða sálfræðing og fá aðstoð með lyfjum.

Hvað get ég gert?
Ef foreldri þitt er með þunglyndi er mikilvægt að þú vitir að það er ekki þér að kenna að það sé veikt. Það er heldur ekki þitt hlutverk að sjá til þess að því líði betur. Það getur verið erfitt að eiga foreldri með þunglyndi, þú veist kannski ekki alltaf við hverju þú átt að búast og það er eðlilegt að þér líði stundum illa, sért hrædd/ur og þyki allt frekar ómögulegt. Það er mjög mikilvægt að þú hugsir vel um þig og gerir hluti sem þér finnst skemmtilegir. Ef þú hefur áhyggjur er gott að tala við einhvern. Það getur verið fjölskylduvinur, þjálfarinn þinn, starfsfólk í skólanum eða einhver fullorðinn.
Ef þér finnst þetta ekki lýsa foreldri þínu eða þeim sem þú ert með í huga skoðaðu fleiri lýsingur á geðrænum vanda hér á vefsíðunni.

Ef þú hefur áhyggjur er gott að tala við einhvern. Það getur verið fjölskylduvinur, þjálfarinn þinn, starfsfólk í skólanum eða einhver fullorðinn sem þú treystir.

Hvað er kvíðaröskun?
Manneskja með kvíðaröskun er oft áhyggjufull og líður eins og eitthvað hræðilegt sé að fara að gerast. Þetta eru oft áhyggjur og ótti sem aðrir upplifa ekki. Kvíða- og óttatilfinningar geta verið sterkar og það getur verið erfitt fyrir einstaklinginn að gera venjulega hluti eins og að skipuleggja sig, fara út eða njóta þess að vera með fjölskyldu og vinum. Það getur verið erfitt að losna við þessar tilfinningar og sumir eru með áhyggjur, ótta og kvíða allan sólarhringinn.

Sumum líður svona í langan tíma, kannski í vikur, mánuði eða fleiri ár. Fólk með kvíðaröskun getur ekki að því gert þó því líði svona.

Lesa meira um kvíðaröskun

Hvernig hagar manneskja sér sem er með kvíðaröskun?
Ef þú þekkir manneskju með kvíðaröskun getur verið að þú heyrir hana oft tala um áhyggjur eða stress, ef það er mamma þín eða pabbi getur verið erfitt fyrir þig að hlusta á allar áhyggjurnar. Það upplifa ekki allir kvíðaröskun á sama hátt.

Hér eru fleiri hlutir sem eru algengir hjá manneskju með kvíðaröskun:

Litlir hlutir verða stórt vandamál og hún er hrædd um að eitthvað slæmt komi fyrir þegar það er mjög ólíklegt að það gerist.

Venjulegir hlutir eins og að fara út, versla, hitta vini, fara í vinnu eða gera eitthvað með fjölskyldunni verða erfiðir.

Hún getur átt erfitt með að sofa.

Hún á það til að svima, svitna eða titra og hjartslátturinn er oft hraður og kröftugur.

Hún getur orðið mjög kvíðinn, farið í uppnám og orðið hrædd eða átt erfitt með að anda.

Hún getur átt erfitt með að einbeita sér og hlusta í samtölum.

Getur verið að ég sé með kvíðaröskun?
Kvíðaröskun er ekki veikindi sem þú getur smitast af og þótt þú eigir foreldri með kvíðaröskun þýðir það ekki að þú munir líka fá kvíðaröskun. Við getum öll fengið kvíða eða verið með áhyggjur. Til dæmis getum við orðið kvíðin ef við erum að fara í próf, keppa í íþróttum eða að tala fyrir framan fólk. Það er eðlilegt að hafa stundum áhyggjur eða kvíða fyrir einhverju, það gerir okkur að manneskjum. Þegar við erum búin með prófið eða þegar keppninni er lokið hverfa venjulega þessar tilfinningar. En manneskja með kvíðaröskun getur upplifað þessar tilfinningar allan sólarhringinn.

Er hægt að lækna kvíðaröskun?
Það er hægt að fá aðstoð. Fólk með geðrænan vanda getur verið á batavegi sem þýðir að því getur liðið betur og notið þess að lifa lífinu með fjölskyldu og vinum. Til þess að líða betur getur verið nauðsynlegt fyrir manneskju með kvíðaröskun að tala við lækni eða sálfræðing og fá aðstoð með lyfjum.

Hvað get ég gert?
Það getur stundum verið ógnvekjandi og erfitt að eiga foreldri með kvíðaröskun. Það er eðlilegt að þú finnir líka fyrir kvíða eða hefur áhyggjur. Ef þú hefur áhyggjur er gott að tala við einhvern. Það getur verið fjölskylduvinur, þjálfarinn þinn, starfsfólk í skólanum eða einhver fullorðinn sem þú treystir. Það er mjög mikilvægt að þú hugsir vel um þig og gerir hluti sem þér finnst skemmtilegir.

Ef þér finnst þetta ekki lýsa foreldri þínu eða þeim sem þú ert með í huga skoðaðu fleiri lýsingar á geðrænum vanda hér á vefsíðunni.