Ungmenni 13-17 ára

Hvað eru geðlyf?

Geðlyf eru lyf sem eru notuð til að meðhöndla geðræn veikindi eins og til dæmis þunglyndi, kvíðaröskun, geðhvörf og geðklofa

Þau virka á boðefnin í heilanum og geta hjálpað til við að draga úr einkennum, bæta líðan og auðvelda fólki að takast á við daglegt líf. Þó að geðlyf geti haft jákvæð áhrif eru þau ekki töfralausn – þau lækna ekki veikindin sjálf en geta hjálpað fólki að líða betur. Þau eru oft notuð ásamt annarri meðferð, eins og samtölum við sálfræðing eða geðlækni. Markmiðið með geðlyfjum er að hjálpa fólki að líða betur og halda jafnvægi í lífi sínu.

No items found.

Mismunandi tegundir af geðlyfjum

Það eru til margar tegundir af geðlyfjum og fólk þarf mismunandi lyf eftir því hvað hentar best. Það sem hjálpar einum hentar ekki endilega öðrum, svo það getur tekið tíma að finna rétt lyf. Læknir getur hjálpað til við að finna það sem virkar best fyrir hvern og einn.

No items found.

Tengt efni